Aldrei í lífinu hélt ég að örlög mín yrðu að fagna hugmyndum frá ungum Sjálfstæðismönnum. En í morgun varð ég að endurskoða þá hugmynd.
Formaður ungra Sjálfstæðismanna virðist vera einn af fáum hægrimönnum sem gera sér grein fyrir því að frekari uppbygging stóriðja (álvera) á Íslandi er ekkert annað en snara um háls almennings og keðja um fætur annarra atvinnutækifæra (eins og hann rökstyður svo vel í grein sinni).
Í grein sinni telur formaðurinn þó ranglega að stóriðju sé ríkisstyrktur áætlunarbúskapu í anda vinstri manna. Í starfi mínu með vinstirmönnum í meira en áratug hef ég aldrei heyrt áætlunarbúskap nefndan nema ef væri í leiðara Moggans endrum og sinnum. Stjóriðjustefnan er ekki áætlunarbúskapur vinstri manna heldur hreinræktaður pilsfaldakapítalismi sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hefur rekið í áratugi.
Nú er komin tími til þess að flokkarnir geri sjálfum sér og þjóðinni það gagn að hverfa frá þeirri atvinnustefnu.
Í dag ætla ég að klappa fyrir því að sú tímabæra vegferð sé hafin.
No comments:
Post a Comment