17.4.14

Íslenskir kennara-Sadistar

Síðustu ár hefur skólakerfið á Íslandi verið fórnarlamb umræðunnar. Umræðu sem er yfirborðskennd, án tilvísanna í staðreyndir eða þá hugmyndafræði sem menntun byggir á. Helst hefur umræðan snúist um að fá sjálfskipaða sérfræðinga sem ekki hafa starfað innan skólanna eða fullorðið fólk sem hefur slæma reynslu af veru sinni í barnaskólum til að tjá sig – og látið eins og þar sé verið að birta raunmyndir af skólakerfinu.
Nýlega birtust á stöð 2 viðtöl sem Sindri Sindrason fréttamaður tók við íslenska kennara. Mig rak í rogastans, hélt að fjölmiðlar gætu bara alls ekki fundið slíkt fólk í íslensku skólakerfi. Sindra tókst hið ómögulega að finna íslenska kennara sem virðast heilbrigðir í hugsun og tali, litu jafnvel út fyrir sinna starfi sínu að kostgæfni!!
Maður var eiginlega farinn að halda að þannig fólk væri ekki til í íslenska skólakerfinu.

No comments:

Post a Comment