Í dag komu gamalkunnug pólitísk skilaboð frá sveitarstjórnarmönnum í Fjarðarbyggð.
Hagvaxtarkapphlaupið er að hefjast.
Í kapphlaupinu eru tækifæri sem enginn má láta fram hjá sér fara. Látum ekkert stöðva okkur að komast í mark með sem allra minnstri umræðu. Við þurfum að standa saman, landa fleiri háspennumöstrum og byggja stærri tengivirki.
Skítt með hálendið – að hika er sama og að tapa.
En…..ef við hugsum út fyrir boxið – er þá hagvöxtur einmitt það sem okkur vanhagar um. Þurfum við endilega að stefna hærra, fara hraðar og fá meira. Er meiri stálnotkun, fleiri rúmmetrar af steypu og fleiri áldósir mælikvarðinn á raunverulegan árangur?
Hækkun þjóðarframleiðslu getur aldrei verið takmark í sjálfu sér, ekki frekar en það, að tilgangur trúarbragða sé að lifa eftir einhverri trúarsetningu. Hér ruglum við saman tilgangi og meðali.
Rányrkja og ofveiði getur talist hagkvæm og haldið hagvexti uppi um skeið! Auðlindarýrnun, náttúruspjöll og annað tjón, sem fylgt getur efnahagsstarfseminni, er ekki tekin með í afskriftalið hefðbundinnar þjóðarframleiðslu.
Það verður því að taka með fyrirvara endurtekinni hvatningu til okkar um að standa okkur í hagvaxtarkapphlaupinu.
Það kann að vera hagkvæmt og hollt að skokka rólega í því hlaupi.
Það kann að vera hagkvæmt og hollt að skokka rólega í því hlaupi.
No comments:
Post a Comment