14.8.14

Minnisblað um hælisleitendur

Umræðan um sannleika eða ósannindi í málum Innanríkisráðherra er orðin talsvert flókin.
Þar er ruglað saman markmiði minnisblaðsins og afleiðingum þess.
Þar er ruglað saman formi bréfs og innihaldi.
Þar er ruglað saman embætti ráðherra og persónu Hönnu Birnu.
Þar er ruglað saman mannréttindum og sögusögnum.
Þar er ruglað saman gagnrýninni umræðu og  ofsóknum.
DV eini fjölmiðillinn sem heldur sjó í umræðunni. Aðrir hafi ekki gefið sér tíma til að átta sig á hvað er raunverulega verið að tala um – kanski er bara öllum sama.
Kanski óþarfi að íslenskur ráðherra lendi í vandræðum vegna útlendings sem ofan á allt virðist eitthvað laus í rásinni

No comments:

Post a Comment