Héraðsdómur Suðurlands féllst í morgun á lögbannskröfu ríkisins á innheimtu gjalds af ferðamönnum við Geysi. Þessari kröfu hafði sýslumaður hafnað og því var úrskurður sýslumanns kærður til héraðsdóms.
Þessi dómur er innlegg í langa umræðu um eignarrétt á náttúruperlum Íslands og hve mikinn aðgang almannaréttur tryggir almenningi að löndum í einkaeigu. Hér er tekist á um grundvallarhagsmuni og framtíðarsýn sem snýst um hvernig við viljum umgangast náttúru landsins.
Þurfum við að viðurkenna þarfir annarra ekki síður en okkar eigin og er hægt að ræða um einhverjar þarfir náttúruheimsins í heild sinni. Er réttlætanlegt að hafa aðeins beinan hagnaði í hugar og missa sjónar af afleiðingum gjörða okkar í víðara samhengi.
Til að tryggja rétt almennings á umgengni um landið þurfa sameiginlegir sjóðir að taka ábyrgð á verndun þeirra og uppbyggingu. Við þurfum að tryggja í sameiningu að náttúruperlur þjóðarinnar láti ekki á sjá undan ágangi ferðamanna, bæði með markvissri uppbyggingu á aðstöðu fyrir ferðamenn á fleiri viðkomustöðum og bættri skipulagningu ferðaþjónustu.
Síðasta ríkistjórn hóf mikið uppbyggingarstarf á síðasta kjörtímabili (uppbyggingu ferðamannastaða 500 milljónir og styrking á innviðum friðlýstra staða 250 miljónir). – hver er staðan á þeim málum í dag?
No comments:
Post a Comment