Á dögunum flutti Sigrún Davíðsdóttir pistil um afnám gjaldeyrishafta. Sigrún taldi eins og mjög margir aðrir nauðsynlegt fyrir íslenskt hagkerfi að gjaldeyrishöftum yrði aflétt.
Í pistlinum var vitnað í Hilmar Veigar Pétursson sem taldi að stíga þyrfti á ýmsar tær til að aflétta gjaldeyrishöftunum. Ástæðan væri sú að ýmsir hefðu hreiðrað um sig í höftunum og hefðu það gott þar. Sigrún tekur að undir orð Hilmars og telur að býsna mörg dæmi séu um meint gjaldeyrissvindl sem eitra út frá sér.
Þetta virðist vera gömul saga og ný í hagstjórn á Íslandi. Það virðist alltaf enda þannig að einhver hópur kemur sér vel fyrir í takmörkunum hálf lokaðs hagkerfis og tekur þannig að sér að handstýra því í sína þágu. Þannig tryggja þeir sem „eiga Ísland“ hagsmuni sína, gæta þess að missa aldrei spón úr aski sínum en tryggja að almenningur á Íslandi þurfi alltaf að borga brúsann.
Lengi framan af öldinni bjuggu íslendingar við gjaldeyrishöft, lengur en nokkrar aðrar evrópskar þjóðir. Við afnám gjaldeyrishaftanna var hagkerfinu handstýrt með gjaldeyrisbraski og gengisfellingum og þannig var tryggt að hægt væri að seilast reglulega í vasa almennings til að borga skuldir ýmissa íslenskra óreiðumanna.
Síðan var gengið sett á flot, í tilraun til að hverfa frá handstýringu gengisins og láta markaðinn ráða verðgildi krónunnar. Tilraunin fór ekki betur en svo að íslenskir sjálftökumenn fundu sér leið til að hafa áhrif á markaðinn með fölskum hækkunum á eignum og hlutabréfum og ýmis konar gjaldeytisbraski.
Og nú eru höftin komin á ný. Blómleg viðskipti hafa myndast með gjaldeyri og margir fara ekki úr landi án þess að nýta sér misgengi krónunnar til að græða á því. Þar hefur enn á ný myndast arðvænlegur bisness fyrir þá sem vilja nýta sér gallað regluverk og handstýrt veikburða hagkerfi til að hagnast óeðlilega.
Þetta er saga íslenskrar hagstjórnar og þetta látum við bjóða okkur ár eftir ár og sættum okkar við lægri laun, hærri vexti og hærra vöruverð en nágrannaþjóðirnar.
No comments:
Post a Comment