7.9.23

Tölfræði um líðan barna

 2014 töldu 81% barna á Íslandi í 8.-10. bekk andlega heilsu sína góða eða mjög góða. Á síðasta ári var þetta hlutfall komið undir 60%.

2022 sögðust 27% stúlkna í 10. bekk vera ánægðar með líf sitt, það hlutfall hefur hrapað á nokkrum árum úr 40%.

Aldrei hafa fleiri börn verið með uppáskrifuð svefnlyf.

Í 8.-10. bekk grunnskóla hafa 51% stúlkna og 22% stráka verið beðin um að senda af sér nektarmynd.

Fjórðungur nemenda á unglingastigi hefur rekist á umræður um leiðir til að grenna sig verulega (t.d. með lotugræðgi og lystarstoli).

Fimmtungur nemenda á unglingastigi hefur séð hatursskilaboð gagnvart minnihlutahópum, áætlanir um slagsmál og leiðir til að skaða sig líkamlega.

Stúlkur fá frekar auglýsingar á netinu um útlitsaðgerðir (t.d. brjóstastækkanir, rassastækkanir og nefaðgerðir), andlitsmeðferðir (t.d. bótox, fylliefni og nálastungur), megrunarvörur og sólbaðsstofur heldur en drengir.

No comments:

Post a Comment