25.4.25

Unglingsárin - Adolecence

Fyrir nokkru síðan horfði ég á þættina Adolescence á Netflix. Þættirnir hafa vakið fjölbreytilega umræðu þar sem hver gagnrýnandi sér þættina með sýnum augum. Sumir gagnrýnendur líta svo á að meginþema þáttanna sé neikvæð áhrif samfélagsmiðla á geðheilsu barna og unglinga, aðrir telja að þættirnir fjalli um vanda ungra drengja og staðalmyndir kynjanna, enn aðrir telja að þættirnir fjalli um neikvæð áhrif netsamfélaga á þroska barna og unglinga og enn aðrir telja að megin viðfangsefni þáttanna sé hvernig efnahagsleg eða menningarleg staða hefur áhrif á möguleika og líðan ungmenna.

Fjölmargir mögulegir á túlkun er án vafa eitt af því sem hefur gert þættina vinsæla og vakið upp ýmis konar umræður um allan vestrænan heim. Eins og aðrir sem hafa fjallað um þættina sá ég þættina strax frá mínum reynsluheimi. Frá þeim heimi sem ég hef talað fyrir í mörg ár sem gagnrýnir skólakerfið fyrir það djúpa tengsla- og merkingarleysi sem nútíma skólakerfi skapar milli barna og fullorðinna og hvernig skólakerfið nær oft ekki að mæta þörfum barna og unglinga. 

Í þáttunum er saga 13 ára stráks, Jamie, sem sýnir hvernig viðkvæmi unglingsáranna getur sprungið út í vanlíðan og ofbeldi þegar bæði heima og í skóla eru mikil átök, misskilningur og of lítil raunveruleg aðstoð eða skilningur frá umhverfinu.

Þættirnir sýna mjög ítarlega hvernig sífellt meiri gjá myndast á milli kynslóða. Fullorðnir í sögunni – foreldrar, kennarar og aðrir – eiga erfitt með að skilja hvað fer fram í lífi unglinganna; þeir átta sig hvorki á stafrænum raunveruleika barna sinna né þeim félagslegu og sálfræðilegu þrýstingi sem þau búa við. Í því samhengi má ganga svo langt að tala um kerfisbundin mistök samfélagsins og foreldra við að verja börnin sín eða ná til þeirra, ekki síst þegar kemur að því að skilja vanlíðan þeirra, hvaða merkingu áhættuhegðun þeirra hafur og hvaða áhrif neikvæð upplifun á skólakerfinu getur haft á börn og unglinga sem eru að þroskast. Þættirnir sýna fram á hvernig reglur og viðmiðanir fortíðar virka ekki lengur og hvaða skaðlegu áhrif það hefur þegar menning barna slitnar frá menningu fulloðrinna sem ekki hafa getu til að hafa áhrif á samskipti og hugsun barnanna.

Þessi gjá er lýst sem tragískasta þáttinum í sögunni: foreldrar Jamie eru ráðvilltir og einangraðir, þeir tala um að lífið ráðist mikið af því að unglingarnir tali eigin tungumál og leyni áhugamálum og vandræðum sínum fyrir þeim, og þeir viti ekkert um þá heimssýn og þann þrýsting sem börnin lifa við á netinu og innan jafningjahópsins. Þeir spyrja sig í örvæntingu hvort þeir hefðu átt að grípa inn í eða hvort þeir voru orðnir of aftengd veruleikanum.

Í þáttunum er skólinn ekki aðeins vettvangur náms heldur líka félagslegra átaka, eineltis og mikillar óvissu. Það er undirstrikað að skólakerfið er illa í stakk búið til að mæta afleiðingum sálræns og félagslegs álags sem fylgir nútíma unglingum, hvort sem er vegna áfalla heiman frá, neteineltis, tímapressu, eða krefjandi prófa og agareglna. Þetta fellur að niðurstöðum rannsókna: nútíma skólakerfi getur auðveldlega bætt á áfallastreitu og kvíða, sérstaklega ef börnin upplifa einangrun, vantraust til fullorðinna eða vantar uppbyggilegar tengsl.

Þættirnir eru vissulega listræn smíð og endurspeglar ekki raunverulegt skólastarf eða raunveruleg tengsl barna og fullorðinna. Þrátt fyrir það geta þeir sem þekkja nútímaskólakerfi komið auga á þá ósýnilegu veggi sem nútíma skólakerfi byggir milli menningar barna og fullorðinna í skólakerfinu. Flestir sem þekkja íslenskt skólakerfi geta myndað hugrenningartengsl um kosti þess að íslenskt skólakerfi geti verið meira manneskjuvænt og sveigjanlegra gagnvart erfiðleikum barna. 

Þættirnir beina sjónum að því að næstu skref samfélagsins eru að skapa öruggari, tengdari og skilningsríkari umhverfi – bæði á heimili og í skólum – þannig að börn og unglingar fái stuðning fremur en að brotna niður undan þrýstingi nútímans.

11.3.25

Ofbeldi barna gagnvart kennurum

Í gær var á Stöð 2 viðtal við Soffíu Ámundadóttir kennara um ofbeldi nemenda gagnvart kennurum. Nú ætla ég ekki að draga úr alvarleika þess sem Soffía talar um en ég vil benda á að þegar barn ræðst á kennara er það barn að öllu jöfnu búið að ráðast á tugi barna og misþyrma þeim andlega og líkamlega án þess að skólinn hafi stöðvað það. Ofbeldi nemenda gagnvart kennurum er því ekki sérstakt vandamál heldur aðeins toppurinn á ísjakanum á stærra og alvarlega máli.

Hluti af því vandamáli er vegna þess að skólinn hlustar ekki nógu vel á foreldra og börn, ekki vegna þess að foreldrar hlusta ekki nógu vel á skólann. Á sama hátt og það er ekki fyrsta viðbragð barns að ráðast á kennarann er það ekki fyrsta verk foreldra að mæta með lögfræðinga í skólann. Foreldrar mæta með lögfræðinga í skólann vegna þess að á þá er ekki hlustað, barnið þeirra fær ekki viðunandi lausn í skólanum og aðferðir sem skólinn býður virkar ekki til annars en að framlengja vandann. 

Það vantar auðmýkt í skólakerfið, að viðurkenna vandann og viðurkenna að kennarar hafa ekki lausnir, auðmýkt gagnvart því að kanski hafa foreldrar lausnina eða hægt er að foreldrar og kennarar vinni saman að lausn vandans. Það er ágætt að vera sérfræðingur en foreldrar og barnið sjálft eru þó alltaf meiri sérfræðingar í líðan og upplifun barnsins en sá sem hefur kennslufræðileg og uppeldisfræðilega sérþekkingu. 

Skólar hafa ekki nægar leiðir til að fara en þeir hafa samt margfalt meiri aðgang að sérfræðingum og úrræðum en foreldrar og börn. Skólar hafa vald sem foreldrar hafa ekki og stuðning stjórnkerfis og lögfræðinga sem fæstir foreldrar gætu látið sig dreyma um. Í því samhengi eru foreldrar alltaf valdaminni en starfsmenn skólans og það er mikilvægt að muna það í allri umræðu um samskipti heimilis og skóla. 

Ofbeldi barna gagnvart kennurum er birtingarmynd valdaleysis barnsins og foreldra þess, hegðun sem felur í sér uppgjöf gagnvart skólakerfinu og fyrirlitningu gagnvart skólastarfi og getu þess til að koma með úrræði sem virka. 

Ofbeldi barns gagnvart kennara er hegðun barns sem hefur í skólnaum lært að hata sjálfan sig.  

9.3.25

Kennari Íslands – Mikilvæg fyrirmynd (Herdís Egilsdóttir)

 Skipulag skóla hefur mikil áhrif á menningu og gildi starfsmanna og móta það starf sem þar fer fram. Til að bæta skólastarf á Íslandi þarf nýja hugsun, nýja menningu og þar með nýtt skipulag.

Við á Íslandi höfum átt marga góða kennara, einn af áhrifamestu og framsæknustu kennurum sem við höfum átt er Herdís Egilsdóttir. Herdís var frumkvöðull í kennsluaðferðum og námsefnisgerð en mikilvægasta arfleigð hennar er að mínu mati viðhorf hennar til barna. Á viðhorfum Herdísar ættum við að byggja okkur nýtt íslenskt menntakerfi, gera skipulag um menntun á íslandi þar sem hlúð er að þeim viðhorfum sem Herdís hafði til nemenda sinna.  Slíkt viðhorf er grunur allrar menntunar og forsenda þess að við getum innleitt hugmyndir um skóla án aðgreiningar.  

Herdís Egilsdóttir bara mikla umhyggju fyrir velferð allra barna og hafði djúpt og kærleiksríkt viðhorf til nemenda sinna. Hún leit á börn sem jafningja og lagði áherslu á að hafa samskipti við þau sem fullgilda einstaklinga og tala við þau á máli fullorðinna. Herdís trúði á mikilvægi þess að undirbúa börn fyrir lífið með því að efla sjálfstæða hugsun þeirra, sjálfstraust og ábyrgðartilfinningu. Herdís lagði mikla  áherslu á fyrirgefningu og mikilvægi þess að kennarar biðji börn afsökunar þegar þeim hefur mistekist, það taldi hún afar mikilvægt til að skapa góð og nærandi tengsl milli kennara og nemenda sem síðan er forsenda merkingarbærs náms.

Herdís taldi að mikilvægasta tækið í kennslunni væri tengsl kennara og barna. Slík tengsl þyrftu að  byggjast á trausti, virðingu og skilningi. Kennarar ættu að vera leiðbeinendur sem veita börnum stuðning og hvatningu, en einnig að hlusta á þau og taka tillit til þeirra sjónarmiða. Herdís lagði áherslu á mikilvægi þess að kennarar sýni umhyggju og áhuga á velferð barna, þar sem slík tengsl geta haft jákvæð áhrif á námsárangur og sjálfsmynd nemenda. Með því að byggja upp jákvæð og traust tengsl geta kennarar hjálpað börnum að þróa með sér sjálfstraust og áhuga á námi.

Þetta viðhorf Herdísar birtist í fjölmörgum viðtölum og greinum sem til eru svo og í störfum hennar með þróun Landnámsaðferðarinnar, þar sem hún setti þroska nemenda í forgang fram yfir hefðbundna fræðslu. Hún hvatti nemendur til að skapa samfélag, fylgjast með náttúrunni og taka ábyrgð á eigin verkum, sem opnaði hug þeirra fyrir lausnaleit og ábyrgð.

Til að byggja nýtt skipulag í skólamálum á Íslandi þarf að kerfisbinda viðhorf og vinnubrögð Herdísar. Umbuna og styðja við jákvætt viðhorf gagnvart börnum og hafa aðgengilegar kennsluaðferðir sem fóstra slík viðhorf. Það þarf að hvetja til þess að fullorðið fólk innan skólans skoði málin út frá sjónarhorn barnsins og þjálfist í að viðurkenna og leiðrétta eigin mistök og að tala við nemendur á jafningjagrundvelli.

28.2.25

Arfleigð Herdísar Egilsdóttir - Vegvísir fyrir nútíma skólastarf

Í Kennaraháskólanum 1992- 1995 kynntist ég fyrst kennsluaðferðum og hugsun Herdísar Egilsdóttir og Ísaksskóla. Ég kom utan að landi og hafði því aðeins kynnst aðferðum Herdísar í fjölmiðlum því á þessum tíma var talsvert um viðtal við hana um kennsluaðferðir og á þeim viðtölum byggði ég greiningu mína.

Í kennaraháskólanum skoðaði ég hugmyndir hennar og skilgreindi sem barnmiðaða kennslufræði. Herdís var þó aldrei kennari með kennslufræði heldur var hún fyrst og fremst sjálf holdgerfinur kennslufræðinnar, brennandi af áhuga á kennslu og börnum og var því í sjálf í eigin persónu einhverskonar kennslufræði.

Í minni kennslu hef ég reynt að formgera þær hugmyndir sem Herdís birti í sinni vinnu. Ég hef því miður ekki fundið út hvaða fræðilegu strauma hún fangaði og kannski hafa þeir ekki verið til staðar en mér þykir þó líklegt að hún og Ísaksskóli hafi orðið fyrir áhrifum að kennslufræði Guðmundar Finnbogasonar (1873–1944) og kennslufræði frá Evrópu sem kennd er við Martinus Jan Langeveld (1905–1989), en ég hef í raun ekkert fyrir mér í því.

Í kennaraháskólanum greindi ég kennslu og viðhorf Herdsar í 5 flokka sem ég síðar notaði sem mitt leiðarljós í kennslu og stjórnun. Flokkarnir eru eftirfarandi:

1. Einlæg, raunveruleg tengsl (Heiðarleg tengsl)
Áhersla Herdísar var alltaf á raunveruleg, lifandi og heiðarleg tengsl við nemendur sína og foreldra þeirra. Í viðtölum lýsir hún því hvernig hún leitaði allra leiða til að leysa vanda barna og hún leit á allan vanda barna sem námsvanda því hún hafði djúpan skilning á því að svangt, vansælt eða kvalið barn gat ekki lært. Herdís lagði mikið upp úr að ræða við börn eins og jafningja, nota ekki annað orðalag en henni var tamt og segja ekkert frá eigin huga sem ekki var heiðarlegt og rétt.

2. Víðsýni og lausnaleit (Opið hjarta)
Herdís lagði áherslu á að börn sköpuðu merkingarbær tengsl við námsefnið og litu á skort á þekkingu sem áskorun og verkefni sem spennandi væri að fást við. Heimurinn var allur undir í kennslunni hjá Herdísi og ekkert sem barn spurði um eða langaði að fræðast um var óviðkomandi námsefninu. Sífelld tengsl milli alls konar hugmynda og hluta, sífelld lausnaleit og sköpun stefndi að námi sem hafði djúp merkingarbær tengsl í huga barnsins.  

3. Kennsla frá sjónarhorni barnsins (Áhersla á raddir barna)
Barnamiðuð kennslufræði er kennslufræði sem leggur sérstaka áherslu á þarfir, áhugamál, reynslu og þroska einstakra nemenda. Í stað þess að fylgja fastmótuðum kennsluáætlunum sem henta einkum kennurum eða námsefni miðar barnamiðuð kennslufræði að því að skapa námsumhverfi þar sem börnin sjálf eru í brennidepli. Hér er áhersla lögð á þátttöku nemenda í námi, sjálfstæði þeirra og getu til að taka ábyrgð á eigin lærdómi. Slíkt nám er sveigjanlegt, einstaklingsmiðað og byggir á virku samstarfi milli nemenda og kennara.

4. Að rækta hæfileika hvers og eins (Meðfædd leiðtogahæfni barna)
Herdís tók skoðanir barna alvarlega og hjálpaði þeim að rækta hæfileika sína og nýta þá til góðs. Í Herdís lagði áherslu á að þekkja styrkleika, veikleika, áhugamál og hæfni hvers nemanda til að skipuleggja nám sem hentar hverjum og einum, þroska sérstaka hæfileika og raungera þá í lífi sínu.

5. Rækta mannauð í samfélagi (Leiðtogasamfélag)
Herdís lagði mjög áhugaverða áherslu á samfélagið í kennslu sinni. Á mikilvægi þess að börn tækju alltaf afleiðingum gerða sinna og kláruðu að leysa úr ágreiningsmálum sínum áður en lengra var haldið. Herdís leit á hvern bekk og skólann sem samfélag þar sem rými var fyrir alla og þar sem hæfileikar og framlag allra var mikilvægt fyrir samfélagið. Fjölbreytileiki í samfélaginu var auðlind sem gerði það sterkara og hæfara til að takast á við óvissa framtíð.

 Í mínu starfi sem kennari og skólastjórnandi hef ég nýtt mér leiðarljós Herdísar. Í námi mínu í stjórnun skrifaði ég  meistararitgerð sem heitir Heiðarleg tengsl – Opið hjarta og fjallaði þar um hvernig hægt er að byggja stofnanir eins og skólastofnanir úr frá þeim gildum. Í kennslunni hef ég sífellt talað fyrir röddum barna og sett upp skipulag þar sem börn nýta leiðtogahæfni sína og líta á skólann sinn sem leiðtogasamfélag.


21.2.25

Að læra að hata sjálfan sig

Hvers vegna þurfum við að breyta skólakerfinu? Það er svo ágætt eins og það er, nokkur vandamál sem má auðveldlega bæta úr, ekkert sem þarf að gera veður út af. 

Það eru margar ástæður fyrir því að breyta þarf íslensku skólakerfi:

Börn læra ekki nóg í skólum, tíma þeirra er illa varið, mörg eyða mestum hluta skóladagsins í að bíða eða vinna verkefni sem ekki skilja eftir sig merkingarbært nám. 

Börnum líður illa í skólum, ekki öllum börnum, en of mörgum. Börn með skilgreindar sérþarfir (öll börn eru í raun með sérþarfir) eiga mjög oft erfitt með að fóta sig í almennu skólakerfi því það er ekki nógu sveigjanlegt.  

En alvarlegasta vandamálið er það að í skólanum læra börn að hata sjálfan sig vegna þess að mannréttinda þeirra er ekki gætt. Í skólanum er þess ekki gætt að sum börn brjóti mannrétti annarra barna. Í skólanum er talað niður til barna, hæðst að og gerð hróp að þeim, gert lítið úr hegðun þeirra og sannfæringu, þau eru einangruð og útskúfuð úr félagahópi, baktöluð, beitt ógnunum og líkamlegu ofbeldi, eigur þeirra skemmdar og þeim meinað að segja skoðun sína!  Allt þetta er brot á mannréttindum og þetta á sér stað í hópi barna í hverjum einasta skóla landsins – á hverjum einasta degi!

Agaleysi er vandamál í íslenskum skólum, allir sem hafa heimsótt grunnskóla í einhverju öðru landi geta vitnað um það. Hvergi nema á Íslandi leyfast hlaup, óp og köll stöðugt á göngum skólans, hvergi nema á Íslandi leyfist viðvarandi hávaði í kennslustundum. Hvergi nema á Íslandi sitja kennarar þegjandi yfir því að hafa misst valdið í kennslustofunni og hópur barna sem kennarinn ræður ekki við hefur tekið það yfir. 

Hér þarf að opna augun.

Viðtal á Samstöðinni

4.2.25

Ísland í fararbroddi í slysavörnum barna – Tími til að sinna sálrænum áföllum þeirra

Þegar ég var að alast upp var hluti veruleikans sífelld slys á börnum sem í mjög mörgum tilfellum leiddu til dauða. Flestir áttu vini sem höfðu drukknað í sundlaug eða í sjónum, hafði fallið úr um glugga eða fallið af klettum eða slasað sig lífshættulega í gömlum byggingum eða húsagrunnum. Þetta er ekki veruleiki barna í dag.

Stundum höldum við að samfélagið breytist af sjálfum sér en í flestum tilfellum verða breytingar vegna þrotlausrar vinnu fólks sem hefur áhuga og þekkingu og fær stuðning ráðamanna til að beita áhrifum sínum i samfélaginu.   Í viðtali við Herdísi á samstöðinni kom fram að þegar hún hóf forvarnarstarf við slysavarnir barna voru slys á börnum margfalt fleiri á Íslandi en á hinum norðurlöndunum en vegna mikillar vinnu við forvarnir og einbeittum vilja hennar náðist einstakur árangur í að fækka slysum á börnum.

Í dag lítum við á lága slysatíðni barna sem sjálfsagt mál. Hins vegar lítum við á vanlíðan barna, skólaforðun, kvíða og þunglyndi barna sem hluta af okkar daglega veruleika sem fáir vita hvernig þeir eiga að bregðast við.

Ég þekki skólakerfið vel og vil því beina sjónum af því. Á hverjum degi fara fram mannréttindarbrot á börnum í skólum landsins. Þessi mannréttindabrot skapa mikla vanlíðan barna auk þess sem það byggir upp neikvæða menningu meðal barna þar sem ýmis konar útskúfun og andfélagsleg hegðun fær næringu sína. Í þessari þróun teljum við fullorðna fólkið okkur trú um að við getum ekkert gert.

Andféalgsleg hegðun er hegðun einstaklinga sem skerðir getu annarra til þess að nýta hæfileika sinna og mannréttinda. Anfélagsleg hegðun birtist í útilokun, höfnun, baktali, særandi  eða niðurlægjandi orðbragði, frelsissviptingu, eignatjóni eða líkamsmeiðingum. Andfélagsleg hegðun er bæði dulin og sýnileg en áhrif hennar er greinileg í áhrifum á menningu og líðan einstaklinga.

Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur Ísland skuldbundið sig til að verja börn gegn hvers konar árás á sæmd þeirra og eða mannorð og samkvæmt sáttmálanum á hvert það barn sem lendir í slíkri lífsreynslu rétt á aðstoð og vernd hinna fullorðnu. Barn á að njóta öryggis í skólanum. Slíkar árásir eiga sér samt stað í hópi barna – í hverjum einasta skóla landsins – á hverjum einasta degi. Í skólanum er talað niður til barna, hæðst að og gerð hróp að þeim, gert lítið úr hegðun þeirra og sannfæringu, þau eru einangruð og útskúfuð úr félagahópi, baktöluð, beitt ógnunum og líkamlegu ofbeldi, eigur þeirra skemmdar og þeim meinað að segja skoðun sína! Í hverjum einasta skóla landsins – á hverjum einasta degi!

Þrátt fyrir að hafa tekið stór skref í líkamlegu öryggi barna er ljóst að Ísland á enn langt í land þegar kemur að því að tryggja sálræna vellíðan þeirra. Í samfélaginu er mikið áreiti og heimilisaðstæður barna eru oft ekki góðar en það er þó frumskylda okkars sem samfélags að gæta þess að kerfinu okkar hafi jákvæð og uppbyggileg áhrif á barnið og bæti andlega líðan þess. Staðan í skólakerfinu í dag er því miður ekki þannig.

Nú þarf nýja Herdísi sem fræðir okkur um hvað það er sem eykur vanlíðan barna og hvað það er sem við sem samfélag og uppalendur getum gert.

Það er mikilvægt að við hugsum um öryggi barna sem órofna heild. Líkamlegt öryggi og sálræn vellíðan eru órjúfanlega tengd. Ísland hefur sýnt að það getur verið leiðandi afl þegar kemur að því að verja líf barna; það sýna slysavarnaraðgerðirnar sem hafa skilað heimsmetnaðarfullum árangri. Nú er hins vegar brýnt að við snúum okkur markvisst að því að byggja upp næmt og réttlátt samfélag sem tekur tillit til þess að börn hafi meiri þörf en nokkru sinni fyrr fyrir virkan stuðning og vernd gegn áföllum.

Eftir því sem Ísland innleiðir betur ákvæði Barnasáttmálans ættu stjórnvöld, skólar, foreldrar og samfélagið í heild að einbeita sér að því að skapa barnaumhverfi þar sem ekki aðeins líkamlegt öryggi þeirra er tryggt, heldur einnig andlegir styrkleikar þeirra eru ræktaðir og þeim gefin merkingarbær rödd. Það er sá jarðvegur sem heilbrigð samfélög vaxa úr.

Viðtal á Samstöðinni við Herdísi um slysavarnir barna

1.2.25

Fjölbreytileikinn í íslensku skólakerfi: Erum við á réttri leið

 Á undanförnum árum hefur íslenska skólakerfið lagt mikla áherslu á fjölbreytileika, einstaklingsmiðað nám og valdeflingu nemenda. Þessi nálgun hefur verið í takt við alþjóðlegar strauma í menntamálum, þar sem markmiðið er að mæta þörfum hvers og eins nemanda og skapa skólaumhverfi sem tekur mið af ólíkum bakgrunni, hæfileikum og áhuga. Hins vegar virðist sem þessi áhersla sé nú að hörfa, bæði hér á landi og víðar, og aðrar leiðir séu teknar upp sem draga úr rými fyrir fjölbreytileikann. Þetta vekur spurningar um hvert við stefnum og hvort við séum að missa sjónar á þeim gildum sem við höfum áður talið mikilvæg.

Afturhvarf til stýringar og atferlismótunar

Í stað þess að þróa áfram leiðir til að valdefla börn og gefa þeim rödd innan skólakerfisins, virðist sem við séum að snúa aftur til meiri stýringar og áherslu á atferlismótun. Þessi þróun birtist í aukinni áherslu á staðlaðar lausnir, stýringu og reglufestu, þar sem nemendur eru frekar mótaðir til að fylgja fyrir fram ákveðnum reglum og væntingum en að fá tækifæri til að tjá sig og taka þátt í eigin námi. Þetta getur leitt til þess að fjölbreytileikinn, sem áður var í forgrunni, verður settur til hliðar í þágu einsleitari nálgunar.

Þessi breyting er ekki séríslenskt fyrirbæri. Í samtölum við kennara og menntunarfræðinga í Bandaríkjunum kemur fram að þar sé sama ferlið í gangi. Þeir lýsa því hvernig áherslan á fjölbreytileika og valdeflingu nemenda hefur vikið fyrir aukinni stýringu og áherslu á hegðun og árangur samkvæmt stöðluðum mælikvörðum. Þetta er áhyggjuefni, þar sem það bendir til þess að við séum að missa sjónar á mikilvægi þess að mæta ólíkum þörfum nemenda og skapa skólaumhverfi sem styður við fjölbreyttan hóp barna.

Af hverju er þetta að gerast?

Ein ástæða fyrir þessari þróun gæti verið sú að við höfum ekki fundið nægilega góðar leiðir til að valdefla börn og gefa þeim rödd innan skólakerfisins. Enn fremur getur það verið vegna þess að við höfum ekki náð að skilja nógu vel hugmyndina um skólastarf sem leggur áherslu á fjölbreytileika og hvaða aðferðir eru farsælastar til að ná þeim árangri sem slík áhersla þarf á að halda. Það er flókið og krefjandi verkefni að skapa skólaumhverfi sem tekur mið af fjölbreytileika og gefur öllum nemendum tækifæri til að blómstra. Þegar slíkar tilraunir skila ekki tilætluðum árangri, eða þegar þær virðast of tímafrekar og kostnaðarsamar, getur verið freistandi að snúa aftur til einfaldari lausna, eins og stýringu og atferlismótunar.

Ný bók um kosti og galla atferlismiðaðs náms

Nýlega skrifaði ég bók sem fjallar um þennan vanda og þá þróun sem við sjáum í íslensku skólakerfi og víðar. Í bókinni legg ég fram kosti og galla þess að leggja áherslu á atferlismiðað nám. Ég skoða hvernig þessi nálgun getur verið gagnleg í ákveðnum aðstæðum, en einnig hvernig hún getur dregið úr rými fyrir fjölbreytilegar skoðanir, skapandi hugsun og valdeflingu nemenda. 

Í bókinni legg ég fram áherslur og hugmyndir um hvernig hægt er að nýta kosti atferlisstefnunnar án þess að missa sjónar á mikilvægi fjölbreytilegra skoðana og hugsunar. Ég tel að það sé hægt að finna jafnvægi þar sem við nýtum styrkleika atferlismiðaðs náms, eins og skýr markmið og skipulag, en á sama tíma tryggjum að nemendur fái tækifæri til að tjá sig, þróa eigin rödd og taka þátt í eigin námi. Þetta jafnvægi er lykilatriði ef við viljum byggja upp menntakerfi sem styður við fjölbreyttan hóp barna og undirbýr þau fyrir framtíðina.

Hvert viljum við stefna?

Þessi þróun vekur mikilvægar spurningar um framtíð íslenska skólakerfisins. Viljum við halda áfram á þessari braut, þar sem fjölbreytileikinn fær minna rými og stýring og atferlismótun verða ráðandi? Eða viljum við leita leiða til að styrkja áhersluna á fjölbreytileika og valdeflingu nemenda, jafnvel þótt það krefjist meiri vinnu og nýrra lausna?

Þróunin í átt að meiri stýringu og atferlismótun í íslensku skólakerfi er áhyggjuefni, sérstaklega ef hún dregur úr rými fyrir fjölbreytileika og valdeflingu nemenda. Við þurfum að íhuga hvort þetta sé sú leið sem við viljum fara, eða hvort við viljum leggja meiri áherslu á að þróa áfram skólaumhverfi sem tekur mið af ólíkum þörfum og gefur öllum nemendum tækifæri til að blómstra. 

Í bókinni minni legg ég áherslu á að við þurfum ekki að velja á milli þessara tveggja nálgana – fjölbreytileika og atferlismiðaðs náms. Við getum nýtt styrkleika beggja til að byggja upp menntakerfi sem er bæði skipulagt og sveigjanlegt, þar sem nemendur fá tækifæri til að vaxa og þróast á eigin forsendum. Spurningin er: Erum við tilbúin að taka þessa áskorun?


2.1.25

Minn óskalisti fyrir kjarasamning kennara og sveitarfélaga

 Fyrir nokkrum árum var ákveðið að fara að fullu í að innleiða Skóla án aðgreiningar í íslenska skóla. Vegna stefnuleysis, peningaleysis, forystuleysis og stöðugra átaka hefur stefnan ekki verið að fullu innleidd. Nú þarf að taka ákvörðun um hvort klárað verði að innleiða stefuna eða hvort horfið verður til baka til skólastarfs með aðgreiningu. ´

Minn óskalisti fyrir kjarasamninga kennara.

1. Kjarasamningar þurfa að skilgreina vel hlutverk umsjónarkennara sem ábyrgðarmann og tengilið í góðum og uppbyggilegum samskiptum við foreldra barna í umsjónarbekk.  

2. Umsjónarkennarar fá eina milljón á mánuði í laun og fyrir það fylgir hann umsjónabekk sínum allan skóladaginn og ber ábyrgð á námi og líðan allra barna allan skóladaginn.  

3. Kjarasamningar kennarar þurfa að innihalda ákvæði um að kennarar fái þjálfun og stuðning til að innleiða hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og tileinka sé fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi bakgrunni, hæfileikum og áhugamálum nemenda.

4. Kjarasamningur kennara þarf að kveða á um að farsældarfulltrúar í sveitarfélögum taki við af kennaranum sem tengiliður við sálfræðinga, félagsfræðinga og barnavernd í málefnum einstakra barna. Foreldrar þurfa að hafa grundvallar stöðu gagnvart sérfræðingum og greiningum barna sinna þar sem umsjónarkennari er aðeins einn aðili sem kemur að málum en ekki grundvallarhlekkur í málefnum barnsins.  

5. Auka þarf ábyrgð umsjónarkennara á umsjónarbekk. Auka þarf kennsluskyldu kennara þannig að umsjónarkennari hafi betri tök á að halda utan um bekkinn sinn og fylgjast betur með þörfum og framförum nemenda sinna.

6. Breyta þarf matskerfum þannig að þau taki mið af fjölbreyttum hæfileikum og styrkleikum nemenda, frekar en að einblína eingöngu á hefðbundin próf og einkunnir.

7. Setja í kjarasamning að hámarks fjöldi í umsjónarbekk fari aldrei yfir 20 nemendur.

8. Taka fagleg störf út fyrir skólaárið og vinna aðeins að kennslu og undirbúningi kennslu á skólaárinu. Starfsdagar fara í nauðsynlegt samráð s.s. kennara- og starfsmannafundi.

Með þessum breytingum gætu kjarasamningar stuðlað að skólastarfi sem er meira í takt við fjölbreytileika og röddum barna, sem getur leitt til betri námsárangurs og vellíðan nemenda.

19.10.24

Hræðileg staða í íslensku skólakerfi

 Fyrir meira en 10 árum skrifaði ég meistararitgerð þar sem ég m.a. tók saman nýlegar rannsóknir á stöðu grunnskóla á Íslandi. Á þeim tíma blasti við hræðileg staða í grunnskólanum sem afar brýnt var að bregðast við, það var ekki gert. Í dag hefur vandinn sem ég lýsti ekki horfið og enn afar brýnt að taka á honum, það stendur bæði upp á forystu kennarasambandsins og Sveitarstjórnarstigið. Nú þarf að setjast niður og horfast í augu við vandann, ekki með afneitun, árásum og umkenningar heldur með vilja til að umbreyta skólakerfinu. Það er ekki aðeins deilur sveitarstjórnarmann og kennara sem málið snýst um heldur er það heilsa barnanna okkar í húfi.

Úr Meistararitgerðinni (2012)

Álag á kennara og skólastarf hefur aukist gríðarlega síðustu ár. Í stað þeirrar einsleitni sem lengi einkenndi íslenskt samfélag er kennara- og nemendahópurinn orðinn fjölbreyttari og einstaklingar úr ólíkum menningarheimum sitja nú hlið við hlið í sama skóla og tala jafnvel ólík tungumál. Upplýsinga- og samskiptatækni hefur í auknum mæli breytt hefðbundnu skólastarfi náms og kennslu og gerir nýjar kröfur til nemenda og starfsfólks. Afleiðingar breytts þjóðfélags birtist í flóknari samskiptum innan skólans, breytingum og auknum kröfum á skólasamfélagið hafa gert það að verkum að félagsleg vandamál eins og einelti eru í meira mæli til úrlausnar í grunnskólanum. Rannsóknir á einelti í kennarahópum hafa ekki verið gerðar á Íslandi en í könnun á einelti meðal ríkisstarfsmanna kom fram að rúmlega 10% ríkisstarfsmanna telja sig hafa orðið fyrir einelti í starfi á 12 mánaða tímabili. Þegar spurt var um aðstæður sem ýttu undir einelti töldu flestir að slæmur stjórnunarstíll væri sá þáttur sem hvað mest ýtti undir einelti (62%). Einnig kom fram í sömu könnun að 28% ríkisstarfsmanna telja að vinnuálag ýti undir einelti á vinnustaðnum (Fjármálaráðuneytið, 2008). Þegar starfsmenn voru spurðir um þætti í samskiptum sem stuðla að einelti nefndu þeir ýmsa andfélagslega þætti  svo sem samkeppni og öfund. Þegar litið er til aðstæðna á vinnustaðnum sjálfum þá töldu ríkisstarfsmenn að óljós skilgreining verkefna, ómarkviss miðlun upplýsinga, ónæg endurgjöf, breytingar og óskýr markmið væru þættur sem auka einelti á vinnustöðum (Fjármálaráðuneytið, 2008).

Íslenskar rannsóknir á tengslum aukins álags á kennara og árangurs eða líðanar nemenda hafa ekki verið gerðar. Erlendar rannsóknir benda til þess að álag á kennara hefur víðtæk áhrif á skólastarfið og leiðir m.a. til þess að þeir eru síður í stakk búnir til að mæta flóknum félagslegum vandamálum eins og einelti (Cemaloglu, 2007; Olweus, 2002; Roland og Sörensen Vaaland, 2001; Wei, Williams, Chen og Chang, 2010).  Skólinn er í eðli sínu stofnun sem ekki getur búið við stöðugar aðstæður, því í breytilegu umhverfi er hann knúinn til að bregðast við. Þetta veldur því að samkeppni getur auðveldlega myndast um völd og hreyfanleiki milli starfsmanna og yfirmanna getur verið mikill. Afleiðingar þessa geta leitt til samkeppni um lausnir og útkomu í stað þess að leiðir séu metnar og íhugaðar í hverju einstöku tilviki (Ball, 1987). Í nýlegri könnun Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara (2012) sem náði til allra starfandi grunnskólakennara á landinu kom í ljós að rúmlega 77% svarenda töldu álag í starfi hafa aukist frekar eða mjög mikið á síðustu fimm árum.

Upplausn gilda og hefða innan samfélagsins hafa áhrif inn í skólann og gera það að verkum að nemendur og starfsfólk hafa ekki sama aðhald og áður af gildum samfélagsins. Upplifun margra kennara er að sá rammi og agi sem kennarar hafa haldið uppi á árum áður séu brostnir (Sólveig Karvelsdóttir, 2004). Aukið álag innan íslenskra grunnskóla er áhyggjuefni því rannsóknir hafa leitt í ljós að aukið álag veldur því að kennarar hafa ekki bolmagn til að veita öllum nemendum fullnægjandi kennslu eða úrlausn (Sólveig Karvelsdóttir, 2004). Afleiðingar aukins álags eru þær að margir kennarar upplifa meiri vanmátt og valdaleysi gagnvart starfi sínu og talsverður hluti kennara telur sig hafa misst tök á starfi sínu sem þeir höfðu áður (Sólveig Karvelsdóttir og Hafdís Guðjónsdóttir, 2010). Í umfjöllun um upplýsinga- og samskiptatækni í skólum kom fram að við notkun upplýsingartækni í skólum fylgir margvíslegt álag á kennara sem ekki var til staðar áður en ný tækni kom fram. Álagið tengdist í nokkrum mæli tæknilegum vandamálum og skorti á nauðsynlegum hugbúnaði. Einnig komu fram vandamál tengd ónógu úrval af heppilegu námsefni, ólíkri nálgun kynjanna og nýrri tegund aga vandamála og verkstjórnar sem kennarar þurftu að takast á við (Þuríður Jóhannsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir, 2004).

Í kjölfar lagabreytinga 1976 taka grunnskólar á Íslandi við nemendum með sértæka námserfiðleika sem áður voru við nám í sérskólum. Íslenskar rannsóknir sýna að aukin fjölbreytni í nemendahópnum eykur álag á 35 kennara (Auður Kristinsdóttir, 2000; Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns, 2006; Sólveig Karvelsdóttir, 2004). Í rannsókn Auðar Kristinsdóttur (2000) kemur fram að sérkennarar telja starf sitt flóknara en áður, verkefnum hafi fjölgað og álag aukist. Telja þeir að aukið álag megi m.a. rekja til þess að fleiri nemendur glíma nú við hegðunar- og tilfinningalega örðugleika og að meiri kröfur væru almennt gerðar til skólans að bregðast við þeim. Í rannsókn Ingvars Sigurgeirssonar og Ingibjargar Kaldalóns (2006) kom fram að starfsfólk skóla telur að hegðun barna í grunnskólum hafi versnað undanfarin ár og er það mat starfsfólks að það þurfi í auknum mæli að takast á við erfið hegðunarvandamál sem það hefur í mörgum tilvikum hvorki kunnáttu né úrræði til að gera (Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns, 2006).

Hegðunarvandamál barna og börn með ýmiss konar sértæk námsvandamál eru ekki þau einu sem hafa gert það að verkum að nemendahópurinn er orðinn fjölbreyttari. Talsverður fjöldi barna af erlendum uppruna stundar nám í íslenskum grunnskólum. Árið 2011 voru 2417 nemendur í íslenskum grunnskólum með annað móðurmál en íslensku, en það er um 6% allra barna á grunnskólaaldri á Íslandi (Hagstofa Íslands, 2011). Ef litið er til hlutfallsins lætur nærri að eitt barn með annað móðurmál en íslensku sé nemandi í hverri einustu bekkjardeild á Íslandi. Í nýlegri íslenskri rannsókn kemur fram að kennarar sem kenna blönduðum nemendahópum telja að starf sitt hafi tekið veruleikum breytingum síðustu ár og verði sífellt flóknara. Menningarleg fjölbreytni eykur álagið bæði á kennara og nemendur sem birtist m.a. í því að margir erlendir nemendur eiga í erfiðleikum með að tengjast íslenskum skólafélögum (Sólveig Karvelsdóttir og Hafdís Guðjónsdóttir, 2010).

Eitt af þeim flóknu félagslegu vandamálum sem kennarar þurfa að glíma við er einelti meðal barna. Rannsóknir hafa sýnt að álag á kennara getur leitt til aukins eineltis í skólanum þar sem álagið dregur úr næmni kennara fyrir vísbendingum um einelti og minnkar getu þeirra til að bregðast við þeim (Cemaloglu, 2007). Þá hafa rannsóknir leitt í ljós að tengsl eru milli árangurs af vinnu gegn einelti í grunnskólum og andlegs ástands kennara (Wei o.fl., 2010). Einelti er flókið og alvarlegt vandamál sem getur haft víðtækar afleiðingar á allt skólastarf (Olweus, 2002). Kennarar eru í lykilhlutverki til að bregðast við flóknum félagslegum vanda eins og einelti og hafa rannsóknir sýnt að tíðni eineltis í skólum má ekki aðeins rekja til hegðunar og viðhorfa nemenda heldur er einnig til viðhorfa kennara, til innra ástands kennarahópsins og þess hvernig skólastjórnendur taka á hegðunar- og agamálum (Roland og Sörensen Vaaland, 2001). Íslenskar rannsóknir á einelti í grunnskólum hafa sýnt fram á að kennarar taka baráttu gegn einelti alvarlega en eiga það til að vanmeta tíðni þess og umfang (Vanda Sigurgeirsdóttir og Sif Einarsdóttir, 2004). Þrátt fyrir að mikil vinna hafi verið lögð í baráttu gegn einelti í skólum á undanförnum árum bendir þverfagleg rannsókn á einelti frá 2012 til þess að þrátt fyrir mikla vitundarvakningu undanfarin ár sé fátt sem bendir til þess að einelti í íslenskum grunnskólum sé að minnka (Daníel Reynisson, Hjördís Árnadóttir og Sjöfn Kristjánsdóttir, 2012).

Álag á kennara hefur bein áhrif á líða nemenda, skólinn á að vera börnum skjól og vörn og styðja þau í þroska og námi. Sú mynd sem ég dróg upp árið 2012 í meistararitgerðinni er ekki fögur og síðan þá hefur lítið verið gert. Það er ekki nóg að setja plástur á sárið við þurfum ítarlega umræðu um stöðu innan skólans og áhrif þeirra stöðu á börn, þar duga ekki umkenningar og upphrópanir – ef sú stefna heldur áfram í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga get ég líklega notað þessa grein aftur eftir 10 ár.

Höfundur er kennari og fyrrverandi sveitarstjórnarkona

Kall eftir kerfisbreytingu í íslensku menntakerfi

 (birt í DV 19. október 2024)

Í ljósi umfjöllunar Ragnars Þórs Péturssonar um skólagöngu hans og Sigríðar Margrétar Oddsdóttur er nauðsynlegt að taka á undirliggjandi vandamálum innan íslenska menntakerfisins. Gagnrýni Ragnars varpar ljósi á þau forréttindi og þá ójöfnuð sem ríkti í þeirra skólagöngu, sem þrátt fyrir tímans rás endurómar enn í núverandi menntakerfi okkar. Þetta kallar á kerfisbreytingu þar sem grunnstoðir skólanna hafa lítið breyst frá dögum Ragnars og Sigríðar.

Skólakerfið sem Ragnar og Sigríður upplifðu var kerfi sem sjálfkrafa aðgreindi nemendur eftir hæfni og bakgrunni. Þessi aðgreining var ekki aðeins líkamleg heldur einnig kennslufræðileg, með mismunandi kennsluaðferðum og verkefnum fyrir mismunandi hópa. Slíkt kerfi er illa í stakk búið til að stuðla að umhverfi þar sem allir nemendur, óháð bakgrunni eða hæfni, geta blómstrað.

Í dag, þrátt fyrir að einstakir skólar og kennarar hafi gert átak í að aðlaga aðferðir sínar og umhverfi, er ytra kerfið enn það sama. Það er kerfi sem á í erfiðleikum með að mæta fjölbreyttum þörfum nútíma nemenda og grípur oft til sömu aðskilnaðaraðferða og áður. Þessi nálgun bregst við að skapa raunverulega skóla þar sem allir nemendur finna fyrir virðingu og stuðningi

Við stöndum á tímamótum, mitt í umbreytingarferli sem er bæði krefjandi og þreytandi. Hins vegar er þetta ferðalag sem við verðum að ljúka. Valmöguleikarnir eru skýrir: annað hvort skuldbindum við okkur til kerfisbreytinga sem faðma fjölbreytileika og aðlögun, eða við förum aftur í úrelt kerfi sem Ragnar og Sigríður upplifðu—kerfi sem, þótt það virkaði fyrir suma, skildi marga eftir.

Til að komast áfram verðum við að viðurkenna að núverandi kerfi er ófullnægjandi fyrir flækjustig nútíma menntunar. Við þurfum skólakerfi sem er sveigjanlegt, aðlögunarhæft og fær um að mæta hverju barni þar sem það er statt. Þetta þýðir að taka upp nýjar menntastefnur, fjárfesta í þjálfun kennara og tryggja að skólarnir okkar séu búnir til að takast á við fjölbreyttar þarfir allra nemenda

Tími breytinga er núna. Við verðum að byggja skólakerfi sem endurspeglar gildi aðlögunar og fjölbreytileika, þannig að hver nemandi hafi tækifæri til að ná árangri. Þetta er ekki bara spurning um stefnu heldur siðferðileg skylda. Með því að skuldbinda okkur til kerfisbreytinga getum við skapað menntunarumhverfi sem raunverulega þjónar öllum nemendum og undirbýr þá fyrir flækjur nútíma heimsins. Við skulum ekki sætta okkur við óbreytt ástand heldur stefna að framtíð þar sem hvert barn getur blómstrað.

18.10.24

Endurhugsum ís­lenskt skóla­kerfi: Ný sýn á nám og kennslu

 (Birt á Vísi 18. október 2024)

Deilur Ragnars Þórs Péturssonar fyrrverandi formanns kennarasambandsins og Sigríðar Margrétar Oddsdóttur framkvæmdarstjóra samtaka iðnaðarins um skólagöngu sína endurspegla dýpri þörf fyrir breytingar á íslenska skólakerfinu. Þessi umræða vekur upp mikilvægar spurningar um hvernig við nálgumst menntun barna okkar og hvernig við getum skapað skólaumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri allra nemenda.

Það er ljóst að viðhorf okkar til barna og menntunar þarf að þróast. Við verðum að viðurkenna að hvert barn er einstakt með sínar eigin styrkleika og þarfir. Skólakerfið ætti að vera sveigjanlegt og aðlögunarhæft, þannig að það geti mætt þessum fjölbreyttu þörfum. Þetta krefst þess að við endurhugsum hvernig við skilgreinum árangur og hvernig við metum framfarir nemenda.

Til að ná árangri í menntun verðum við að skapa skóla þar sem öllum nemendum líður vel. Þetta þýðir að við verðum að leggja áherslu á félagslega og tilfinningalega vellíðan nemenda, ekki bara akademískan árangur. Skólinn ætti að vera staður þar sem börn finna fyrir öryggi, stuðningi og hvatningu til að læra og vaxa.

Við verðum að tryggja að nám sé merkingar bært og viðeigandi fyrir alla nemendur. Þetta þýðir að kennarar þurfa að hafa frelsi til að nota fjölbreyttar kennsluaðferðir sem henta mismunandi nemendum. Skólakerfið ætti að styðja við nýsköpun og skapandi hugsun, þannig að nemendur séu undirbúnir fyrir áskoranir framtíðarinnar.

Við getum ekki farið aftur í þann skóla sem Ragnar og Sigríður upplifðu. Við verðum að hafa kjark til að endurhugsa skólakerfið og trúa því að við getum öll gert betur. Þetta krefst þess að við tökumst á við áskoranir og vinnum saman að því að skapa menntakerfi sem þjónar öllum börnum okkar. Með því að leggja áherslu á vellíðan, fjölbreytni og merkingar bært nám getum við byggt upp skóla sem undirbýr nemendur fyrir framtíðina og gerir þeim kleift að blómstra.

14.10.24

Hvatning borgarstjóra til sveitarstjórnarmanna: Velferð barna og starfsfólks skóla í fyrirrúmi

(Birt í DV 14. október 2024)

Ummæli Einars Þorsteinssonar, borgarstjóra Reykjavíkur, á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga hafa vakið umræður um mikilvægi þess að endurskoða og bæta skólakerfið. Þessi orð ættu að vera hvatning til sveitarstjórnarmanna um allt land til að setja velferð barna og starfsfólks skóla í fyrsta sætið. Með því að hlúa betur að skólastarfinu sjálfu, getum við skapað umhverfi þar sem bæði nemendur og kennarar geta blómstrað.

Sveitarstjórnarmenn hafa lykilhlutverki að gegna í að tryggja að skólakerfið sé í þágu barna. Með því að leggja áherslu á velferð barna, er verið að tryggja að þau fái þá menntun og stuðning sem þau þurfa til að ná árangri. Þetta felur í sér að skapa umhverfi þar sem börn geta lært og þroskast í öruggu og styðjandi umhverfi. Sveitarstjórnarmenn ættu að skoða hvernig þeir geta stutt við skólastarf með því að veita nauðsynlegar auðlindir og stuðning.

Kennarar og annað starfsfólk skóla eru grunnstoðir skólakerfisins. Með því að tryggja að þeir fái þann stuðning sem þeir þurfa, bæði í formi betra vinnuumhverfis og aukins stuðnings, er hægt að tryggja að þeir geti sinnt starfi sínu af kostgæfni. Sveitarstjórnarmenn ættu að skoða hvernig þeir geta bætt starfsumhverfi kennara, til dæmis með því að draga úr álagi og veita aukinn stuðning við að takast á við flókinn og margþættan vanda allt of margra barna.

Orð Einars ættu að vera hvati til að skoða hvernig við getum gert kerfisbreytingar sem miða að því að bæta skólakerfið í heild. Með því að setja velferð barna og starfsfólks skóla í fyrsta sætið, erum við að leggja grunn að betra samfélagi. Þetta er ekki aðeins í þágu skólanna, heldur samfélagsins alls. Þegar börn fá tækifæri til að blómstra í skóla, skilar það sér í sterkari og heilbrigðari samfélagi.

Sveitarstjórnarmenn hafa tækifæri til að taka orð Einars Þorsteinssonar til sín og vinna að því að bæta skólakerfið með áherslu á velferð barna og starfsfólks. Með því að hlúa betur að skólastarfinu sjálfu, getum við skapað umhverfi þar sem bæði nemendur og kennarar geta blómstrað. Þetta er í þágu allra, bæði barna og samfélagsins í heild. Með því að setja velferð barna og starfsfólks í fyrsta sætið, getum við skapað betra og réttlátara samfélag.

Kerfisbreytingar í skóla­kerfinu: Vel­ferð barna í fyrir­rúmi

(Birtist í Vísi 14. október 2024)

Nýleg ummæli Einars Þorsteinssonar, borgarstjóra Reykjavíkur, á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga hafa vakið athygli og umræður um nauðsyn kerfisbreytinga í skólakerfinu. Með áherslu á að bæta starfsumhverfi kennara og stuðla að betri líðan þeirra, er markmiðið að skapa betra skólakerfi fyrir börn. Þegar kennarar eru ánægðir í starfi, skilar það sér í betri líðan og árangri nemenda.

Rannsóknir sýna að starfsánægja kennara hefur bein áhrif á líðan og árangur nemenda. Þegar kennarar fá þann stuðning sem þeir þurfa, bæði í formi betra vinnuumhverfis og aukins stuðnings, geta þeir sinnt starfi sínu af meiri gleði og ástríðu. Þetta skilar sér í betri kennslu og hamingjusamari börnum. Með því að leggja áherslu á að bæta starfsumhverfi kennara, er verið að leggja grunn að betra skólakerfi fyrir börn.

Kerfisbreytingar sem miða að því að bæta líðan kennara eru í raun breytingar í þágu barna. Þegar kennarar eru ánægðir og vel studdir, geta þeir einbeitt sér að því að veita nemendum bestu mögulegu menntun. Þetta er í samræmi við nýleg lög um farsæld barna, þar sem áhersla er lögð á að staða og líðan barna séu útgangspunktur skólastarfsins. Með því að tryggja að kennarar séu vel undirbúnir og ánægðir í starfi, er verið að skapa umgjörð þar sem börn geta blómstrað.

Markmið kerfisbreytinga í skólakerfinu ætti alltaf að vera velferð barna. Með því að leggja áherslu á að bæta starfsumhverfi kennara, er verið að tryggja að börn fái þá menntun og stuðning sem þau þurfa til að ná árangri. Þetta er ekki aðeins í þágu barna, heldur samfélagsins alls. Þegar börn fá tækifæri til að blómstra í skóla, skilar það sér í sterkari og heilbrigðari samfélagi.

Orð Einars Þorsteinssonar ættu að vera hvati til að skoða hvernig við getum bætt skólakerfið með áherslu á velferð barna. Með því að styðja kennara og skapa betra vinnuumhverfi, erum við að leggja grunn að betra skólakerfi þar sem börn geta blómstrað. Þetta er í þágu allra, bæði barna og samfélagsins í heild. Með kerfisbreytingum sem miða að því að bæta líðan kennara og barna, getum við skapað betra og réttlátara samfélag.

4.10.24

Að finna til með börnum

 (Vísir 4. október 2024)

Ég hef verið starfsmaður skólakerfisins í næstum 30 ár, þar af í hlutverkum eins og leiðbeinandi, kennari, deildarstjóri, skólastjóri, fulltrúi í skólanefnd, og í stjórn kennara og skólastjórasamtaka. Í allri þessari reynslu hef ég komið að verkefnum og stefnumótun á ýmsum sviðum. Í öllum þessum verkefnum hef ég sífellt sannfærst betur um að náin, einlæg tengsl milli starfsmanna skóla og barna sé verið lykill að bættum námsárangri og vellíðan barna.

Áherslan á slík tengsl byggir á hugmyndinni um að skólar séu ekki aðeins staðir til menntunar heldur einnig samfélög þar sem börn fá uppfyllt víðtækari þarfir sínar. Herdís Egilsdóttir er fyrirmynd mín í þessum efnum. Árin 1992-1995, þegar ég var í kennaraháskólanum, fann ég fyrir áhrifum hennar starfs og viðhorfa. Herdís einblíndi ekki aðeins á nýjungar í kennslu og námsefnisgerð, heldur einnig á mikilvægi samskipta við börn, sem skapa grunninn fyrir raunverulegt, uppbyggilegt og merkingar bært nám.

Í nærri 30 ár hef ég unnið af heilum hug að því að skapa þessi tengsl. Börnin eyða stórum hluta vökutíma síns innan veggja skólans og því er mikilvægt að þar fái þau fullnægt tilfinningalegum þörfum sínum. Það þarf að mynda merkingarbær tengsl við þau, virða þau sem sjálfstæðar persónur og hlusta á þeirra rödd.

Síðastliðna áratugi hef ég þó fengið að upplifa að það verður sífellt erfiðara að viðhalda þessum tengslum. Vandamál tengjast ekki ótta um að hægt sé að fara yfir mörk, eða því að börnin sjálf vilji ekki tengjast; heldur snýst það um að búa við úrræðaleysi þegar reynt er að hjálpa barni. Of oft snúast skólakerfin um pappírsvinnu og skriffinnsku fremur en raunverulegan stuðning við nemendur. Kennarar lenda oft í aðstöðuleysi þegar koma þarf til aðstoðar við áhyggjur og vanda barnanna.

Við þurfum að skoða hvernig kerfi okkar stríða gegn þeirri nálgun sem við vitum að virkar. Þetta krefst samstilltra aðgerða frá stjórnvöldum, skólum, kennurum og samfélaginu í heild sinni. Við verðum að tryggja að stuðningskerfi fyrir kennara séu sterk, og að áherslan á mannleg tengsl glatist ekki í áherslu á fagmennsku og mælingar. Með þessu getum við skapað umhverfi þar sem börn geta dafnað, bæði í námi og sem einstaklingar. 


3.9.24

Vont kerfi eyðileggur góðan ásetning

Í flóknu samspili ólíkra og stundum ósamrímanlegra krafna höfum við skapað skólakerfi sem dregur fram óhugnanlegan sannleik: skólakerfið á Íslandi dregur úr og jafnvel kæfir bestu áform góðra kennara. Kennarar, sem hafa það aðalmarkmið að hlúa að og leiðbeina börnum, finna sig oft fastir í skriffinnsku og forgangsröðun sem víkur frá grunnþörfum barna.

Lög um velferð barna

Íslensk lög um velferð barna leggja áherslu á að tryggja réttindi og velferð barna í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, eins og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Lögin tryggja rétt barna til menntunar sem stuðlar að alhliða þroska þeirra. Til að þessi markmið geti náðst verður skólakerfið að fara út úr því að einblína á fræðilegan árangur og rækta umhverfi þar sem tilfinningaleg heilsa er jafn mikils metin og vitsmunalegur vöxtur. Þessi breyting krefst hugarfars- og kerfisbreytinga, sem setja raunverulegar þarfir barna í forgang.

Einstaklingsbundin athygli

Kjarni árangursríkrar menntunar liggur í skilningi á því að hvert einasta barn er einstakt og krefst einstaklingsbundinnar athygli. Þetta uppbyggilega samband krefst þó meira en bara góðra áforma—það krefst tíma, raunverulegs áhuga og dýptarþekkingar sem núverandi kerfi setur ekki í forgang.

Skólar sem örugg skjól

Börn eyða meirihluta vökutíma síns innan veggja skólans, sem gerir það að verkum að nauðsynlegt er að mæta tilfinninga- og sálrænum þörfum þeirra í þessu umhverfi. Stuðningsríkt skólaumhverfi ætti að setja öryggistilfinningu nemenda í forgang og vinna ötullega að því að lágmarka streitu, og skapa þannig skjól fyrir nám og vöxt.

Þörf á endurmati menntakerfisins

Núverandi menntakerfi okkar er ekki í takt við grundvallarþarfir barna. Það er byggt upp í kringum forgangsröðun sem, þó kannski vel meint, setur of oft tilfinningalegar og félagslegar þarfir barna til hliðar. Þetta ósamræmi kallar á endurmat og umbreytingu sem verður að ráðast í strax,  áður en fleiri börn hljóta tilfinningalegan skaða af.

Niðurstaða

Þegar við horfum til framtíðar verður ákallið um breytingar sífellt brýnna. Með því að samræma menntakerfi okkar til að einblína á heildrænan þroska barna getum við tryggt að skólar verði staður þar sem hvert barn er séð, heyrt og metið—ekki bara sem hluti af hópi, heldur sem einstaklingar með einstaka möguleika. 

23.11.23

Sjónarhorn barna

Börn eru ólíkir og skapandi einstaklingar sem lifa í flóknum félagslegum veruleika. Hvert barn hefur sína líkamsgerð og sögu sem gefur því einstakt sjónarhorn á veruleikann. Auk persónulegs sjónarhorns er hugsun barns ólík hugsun fullorðinna, þar sem barn þroskast og breytist hraðar og á annan hátt en á nokkru öðru æviskeiði. Hraður þroski og sérstaða bernskunnar gefur hugsun barns ákveðin einkenni sem nauðsynlegt er að taka tillit til þegar umhverfi barnsins er skipulagt.

Sjónarhorn og upplifun fullorðinna á veruleika barna er viðfangsefni flestra rannsókna á sviði uppeldis- og kennslufræði og hefðbundin uppeldisfræði endurspeglar slíkt sjónarhorn. Þetta veldur því að sérstaða og upplifun barnsins fellur í skuggann af upplifunum þess fullorðna og þeim kenningum sem hann velur sér til að spegla veruleika barnsins í. Þetta hefur í för með sér þá hættu að breytur sem skipta miklu máli í huga barnsins og hafa áhrif á upplifun barnsins eru ýmist ekki skoðaðar eða eru metnar sem óverulegar frá sjónarhorni fullorðinna.

Aðferðafræði sem leggur áherslu á sérstöðu barnæskunnar og fjölbreytileika í tilveru barna felur í sér tvo þætti; fyrstu persónu sjónarhorn barnsins, eins og sjónarhornið birtist í eigin reynsluheimi barnsins – og sameiginlega skólamenningu barna og fullorðinna, þar sem raunverulegt mót reynsluheima og mögulegra heima á sér stað. Í rannsóknum á barnæskunni þarf að nálgast fyrstu persónu sjónarhorn barnanna, það er byggja á því hvernig upplifun barnanna sjálfra er og hvort og þá hvernig nám þeirra fer fram. Slík nálgun spyr um persónulega merkingu barnsins, tilgang og einlægni að baki því sem birtist og hvernig barnið lifir lífi sínu stöðugt í merkingarheimi sem það hefur ekki átt þátt í að skapa. Áhersla á raunveruleg tengsl og fyrstu persónu sjónarhorn draga fram mikilvægi þess að gera rannsóknir við raunverulegar aðstæður og persónulega upplifun og draga þá þætti fram í gögnum sem birta það sjónarhorn í stað þess að notast við staðlaða þekkingu eða tilbúnar aðstæður. Áhersla á sameiginlegt samfélag barna og fullorðinna gefur barninu nauðsynlegan stöðugleika og vernd í skólanum, ekki aðeins til að sinna námi sínu heldur ekki síður möguleika á að þroskast eðlilega í samfélagi sem byggt er upp með áhuga og athygli fullþroska einstaklinga.

2.11.23

Valdefling barna í skólum

Eitt þeirra stefnumótandi skjala sem áttu að leiða íslenska þjóð inn í betra samfélag eftir bankahrunið var íslenska námskráin. Námskráin kom út árið 2011 og boðaði nýjungar sem ekki höfðu verið hluti af íslensku menntakerfi áður. Markmið þessara breytinga var að valdefla börn, gefa þeim svigrúm í skólakerfinu til að þroska eigin styrkleika, auka trú barna á eigin getu og efla félags þroska þeirra.

Námskráin setti fram heildstæða skólastefnu í sex grunnþáttum sem hefur það að markmiði að byggja upp skólakerfi sem menntar virka einstaklinga sem hafa næga hæfni til að veita valdhöfum í fjármálalífinu, stjórnmálum og fjölmiðlum eðlilegt aðhald.  Sýn námskrárinnar er að saman geti skapandi og gagnrýnir einstaklingar byggt upp samfélag, þar sem allir þegnar samfélagsins taka ábyrgð á eigin lífi en skapa um leið rými fyrir fjölbreytileg sjónarhorn.

Þegar námskráin kom út hafði ég ásamt þeim hópi kennara og skólastjórnenda sem ég starfaði með á þeim tíma leitað leiða til að styrkja skólasamfélagið en um leið auka sjálfstæði nemenda. Það markmið náðist ekki og síðar hef ég séð marga skóla leggja til hliðar áherslu á valdeflingu nemenda vegna þess að það hentaði ekki þeim grundvallarhugsunum sem voru til staðar í skólakerfinu.

Íslenska námskráin sem kom út 2011 lagði áherslu á valdeflingu nemenda sem átti að nýtast þeim sem persónulegur styrkleiki í lýðræðissamfélagi. Nú eru meira en 10 ár liðin frá útkomu námskrárinnar og mikið hefur verið gert til að valdefla nemendur í íslensku skólakerfi. Skólaþing eru haldin, boðað er til ýmis konar kosninga, nemendur eiga sína fulltrúa í skólaráði og skólanefndum og nemendalýðræði hefur öðlast fastan sess í fjölmörgum skólum.

Þrátt fyrir þessa valdeflingu er fátt sem bendir til þess að skólakerfið sé að þroska börn til að vera sjálfstæðir, sterkir einstaklingar sem eru færari til að skapa sér farsæla framtíð. Þvert á móti benda rannsóknir til þess að íslensk börn standi félagslega illa og hafi slakari félags þroska en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum, sjálfstraust þeirra sé ekki nógu gott og trú þeirra á eigin getu sé alls ekki meiri en fyrir innleiðingu námskrárinnar.

Það er augljóst að hér hefur íslenskt skólakerfi farið út af sporinu.

Það er einkum tvennt sem veldur því að valdefling barna í íslensku skólakerfi nýtist börnum ekki sem persónulegur styrkleiki, annars vegar er það tæknileg sýn á börn og hins vegar fjarlægð starfsmanna skóla frá menningu barna. Að þessum rótum verðum við að ráðast, ef ekki fyrir okkur sjálf sem samfélag þá fyrir börnin okkar.

24.10.23

Raddir kvenna og raddir barna

 (Birt í DV 24. október 2023)

Kvennaverkfallið er í dag.

Verkfallið er framhald af kvennafrídeginum sem markaði upphaf áratugabaráttu kvenna fyrir jafnrétti kynjanna. Á Íslandi hafa konur leitt jafnréttisbaráttuna og í alþjóðlegu samhengi er staða kvenna á Íslandi ein sú besta í heiminum. Ýmsir undirsettir hópar hafa tekið sér jafnréttisbaráttu kynjanna til fyrirmyndar og leitað í smiðju feminískra kenninga eftir vopnum í sína baráttu. Jafnréttisbarátta ýmissa undirsettra hópa svo og jafnréttisbarátta kynjanna hefur breytt íslensku samfélagi og gert það betra en það var áður.

Raddir kvenna hafa ekki alltaf verið hluti af samfélögum þar sem karla og kvenna og í mörgum þjóðfélögum heyrast raddir kvenna ekki enn í dag. Í háskóla las ég sögulega frásögn af þingi þar sem í fyllstu alvöru var tekist var á um hvort konur byggju yfir vitrænni hugsun á sama hátt og karlar. Umræða þingsins fól í sér hugmyndir um hvort konur ættu meira sameiginlegt með dýrum, verkfærum eða náttúruöflum en með karlmönnum sem bjuggu yfir sjálfstjórn, rökhugsun og frjálsum vilja.

Foreldrar mínir eru fæddir fyrir miðja síðustu öld. Á æskuheimili mínu var aldrei efast um að mamma hefði vilja og sjálfstjórn en rödd hennar og rými til athafna var samt sem áður ekki afmarkað af henni sjálfri heldur af hugmyndum pabba og hugmyndum þeirra karla sem þá voru ráðandi í samfélaginu. Mamma vann heimilisstörfin, hugsaði um okkur systurnar, tók þátt í félagsstörfum og stýrði heimilinu innan þeirra marka sem henni voru sett. Einstaka sinnum fór mamma út fyrir þennan ramma og þá greip pabbi í taumanna og leiðrétti þær ákvarðanir sem hún hafði tekið. Um miðja síðustu öld var óhugsandi að mamma færi að biðja pabba vaska upp og enn fráleitara að honum hefði dottið það í hug sjálfum, slíkt var einfaldlega ekki til umræðu jafnvel ekki á þeim tíma sem þau unnu bæði utan heimilisins.

Þökk sé kvennabaráttunni þurfti ég sjálf ekki að móta mig í sérstök kynhlutverk. Mér finnst mikilvægt að vera ég sjálf, fá að ráða lífi mínu og skilgreina sjálfan mig á þann hátt sem mér finnst best. Ég fagna því að vera í hjónabandi þar sem ég get sinnt heimilisstörfum með manninum mínum, deilt með honum ábyrgð á fjölskyldunni, að geta sagt það sem ég vil þegar ég vil, átt þau áhugamál sem mér líkar og umgengist þá sem mig langar til. Vegna kvennabaráttunnar er ég ekki aðeins kona heldur fæ ég að vera sjálfráða einstaklingur með öllum þeim fjölbreytileika sem það getur falið í sér.

Út frá þessum þremur sögum má sjá jafnréttisbaráttuna í þrenns konar samfélögum. Í fyrsta lagi samfélag sem lítur á konuna sem viljalaust verkfæri karlmannsins með það hlutverk að uppfylla þarfir hans. Í öðru lagi samfélag þar sem konan hefur frelsi innan þeirra marka sem samfélag karla veitir henni og í þriðja lagi samfélag þar sem konan getur valið að skilgreina sjálfan sig og stöðu sína í samfélaginu eftir því sem hún telur hæfa hverju sinni.  Þannig hefur jafnréttisbaráttan frelsað konuna frá því að vera raddlaus einstaklingur að því að hafa rödd á flestum sviðum samfélagsins.

Undanfarin ár og áratugi hef ég barist fyrir því að raddir barna fengju að heyrast í skólastarfi. Ég hef oft átt samræður um raddir barna og hef mætt margs konar viðhorfum. Sumir telja að helst eigi ekki að heyrast mikið í börnum, þau eigi að sitja hljóð og vinna þau verk sem þeim er úthlutað, klára þau á sómasamlegan hátt og taka svo til við næsta viðfangsefni sem hefur verið ákveðið að þau vinni. Aðrir telja að vissulega eigi að taka tillit til tilfinninga og vilja barna en aðeins innan þeirra marka sem fullorðnir setja þeim. Þannig geti börn valið milli fyrir fram gefinna verkefna og tjáð tilfinningar sínar og viðhorf innan ákveðins ramma, á ákveðnum stöðum eða við ákveðin tækifæri. Í þriðja lagi eru það þeir sem telja að börn séu ekki fyrst og fremst börn heldur fullgildir fjölbreytilegir einstaklingar sem eigi rétt á að skilgreina sjálfan sig, tjá tilfinningar sínar eins og þau kjósa, velja sér verkefni við hæfi og taka þátt í ákvörðunum sem snerta þau sjálf.

Hugsanlega finnst einhverjum þetta of langt gengið. Börn hafa ekki fullan þroska og vita ekki hvað þeim er fyrir bestu, þau geta ekki tekið ákvarðanir, tjáð sig á fullnægjandi hátt eða séð allar hliðar mála. En ef við hugsum málið aðeins dýpra þá eru þetta sömu rök og notuð voru ári 1975 til að koma í veg fyrir að konur fengju að skilgreina sig út frá eigin upplifun í stað þess að móta tilveru sína í fyrirfram gefnar staðalmyndir.

17.10.23

Mannlegi þátturinn í skólastarfi

 (Birt í DV 17. október 2023)

Vanlíðan barna getur verið margs konar og sprettur af ólíkum ástæðum, vanlíðan getur verið mikil eða lítil, langvarandi eða tímabundin. En ólík vanlíðan felur samt sem áður í sér marga sameiginlega þætti. Að upplifa vanlíðan felur í sér óánægju með eigin stöðu í lífinu, þrá um að vera annars staðar en hér og nú eða að vera einhver annar en við erum í raun og veru. Að líða illa felur í sér óvirkni, vonleysi og neikvæðar hugsanir sem leiða til neikvæðar sjálfsmyndar og minni trú á eigin getu. Vanlíðan barna á sér margskonar rætur en samt sem áður er mikilvægt að veita henni athygli, gefa barninu tækifæri til að ræða um vanlíðan sína og aðstoða það til að finna sér leiðir til að líða betur. Ef það er ekki gert getur lítil og tímabundin vanlíðan breyst í mikinn og langvarandi vanda.

Of mörgum börnum líður ekki vel í skólanum. Það getur verið vegna þess að sérfræðiþekkingu skortir en það getur líka verið vegna þess að of mikil áhersla er lögð á sérfræðiþekkingu og minni áherslu á mannlega hlýju, skilning og umhyggju. Börnum getur liðið illa í íslenskum skólum vegna þess að of mikið er hlustað á ráð gamalla karla eða of mikið horft á sjónarhorn miðaldra kvenna en fyrst og fremst er það þó vegna þess að ekki er tekið mark á sjónarhorni barna. Börn hafa ekki rödd í íslensku samfélagi, þau fá ekki að segja frá hugmyndum sínum, líðan þeirra skiptir ekki nógu miklu máli,  skoðanir þeirra eru ekki virtar og vandamál þeirra talin óveruleg og óviðkomandi því skólakerfi verkferla, starfslýsinga, markmiða og flæðirita sem hinir fullorðnu vilja verja og styrkja.

Skólakerfið nær ekki að bæta úr vanlíðan barna vegna þess að bilið á milli fullorðinna og barna í skólanum er allt of mikið og barninu er mætt í of miklum mæli sem tæknilegu vandamáli en ekki lífrænum veruleika. Þetta birtist í því að barnið hefur engan fullorðinn í skólanum sem það getur leitað til, engan til að setjast niður með og ræða það sem brennur á því. Í því samhengi er ég ekki að tala um bekkjarfundi eða tengsl sem byggja á fyrirmælum og leiðbeiningum heldur raunverulegt samtal þar sem barnið fær svigrúm til að tjá sig á þann hátt sem það telur best og ræða um það sem brennur á því.

Því fyrr sem við mætum hverju og einu barni í skólanum með umhyggju og athygli því fyrr fær það tækifæri til að opna sig fyrir sínum eigin vanda og því fyrr fær það tækifæri til að græða þau sár sem valda barninu vanlíðan. Áföll og vanlíðan í æsku hafa geysileg áhrif á fullorðinsár, þeim vanda verður að mæta á meðan einstaklingurinn er enn þá barn. Áhugasamur, næmur kennari sem hefur innsæi, áhuga og umhyggju til að hlusta og vera raunverulegur hluti af lífi barna getur gert miklu meira en margir sálfræðitímar og fjölmargar greiningar. Ef við tökum betur utan um börnin í skólanum og leyfum hverju einu barni að hafa rými í skólanum getum við í framtíðinni, fækkað átökum sem spretta af reiði, hatri og skilningsleysi og fækkað þeim börnum sem finna þörf til að flýja líf sitt í ýmis konar sjálfs eyðandi hegðun.

Það þarf að breyta sýn á barnið í skólakerfinu, ekki hugsa: „Hvað er eiginlega að þessu barni‘“ eða „Hvað kom eiginlega fyrir þetta barn?“ heldur þurfum við að spyrja okkur hvar raddir barna fá að heyrast og hvaða leiðir þarf að hafa til að koma til móts við hvert og eitt barn í þeirra daglega lífi. Markmiðið ætti að vera að öllum börnum líði vel í skólanum, að öllum börnum sé veitt athygli og umhyggja á hverjum degi og að börn hafi alltaf einhvern fullorðinn að leita til þegar vandamál og vanlíðan koma upp.

13.10.23

Við þurfum fleiri Þorgríma

 (birt í DV 13. október 2023)

Í gær birtist á Vísi viðtal við rithöfundinn Þorgrím Þráinsson þar sem hann kallar eftir þjóðarátaki gegn vanlíðan barna. Þorgrímur setur fram nokkrar staðreyndir úr rannsóknum sem sýna að líðan margra barna er slæm og að næstum helmingur unglinga telja geðheilsu sína ekki nægjanlega góða.

Þorgrímur hefur lag á að setja hugmyndir sínar fram þannig að fólk hlustar, það eru ekki allir sammála áherslum hans en hann hefur sýnt að hann getur haft áhrif, hann getur breytt hugsun fólks og þjappað fólki saman um ákveðinn málstað. Síðustu ár hefur Þorgrímur ferðast um landið og haldið fyrirlestra í skólum þar sem hann ræðir við börn um; að trúa á sjálfan sig, láta drauma sína rætast, þjálfa með sér andstöðu við margskonar áhrif í umhverfinu og gefast ekki upp þó á móti blási. Flestir ættu að vera sammála um að það er mikilvægt fyrir börn að heyra boðskap Þorgríms og slíkur boðskapur hlýtur að vera til góðs.

Ég er ein af þeim sem hef áhyggjur af líðan barna, ég hef áhyggjur sem foreldri, ég hef áhyggjur sem kennari og sem áhugamanneskja um velferð fólks almennt. Ég deili áhyggjum Þorgríms og reynsla mín síðustu 30 árin hefur sannfært mig um að þetta er raunverulegt vandamál.

Ég ber virðingu fyrir Þorgrími og er sammála honum þó ég greinir aðstæður á annan hátt en hann gerir. Ég er til dæmis algerlega ósammála því að foreldrar nenni ekki að ala upp börn sín og að skólinn sé að gera allt sem í sínu valdi stendur til að bæta líðan barna.  Á síðustu 30 árum hef ég upplifað miklar breytingar á foreldrahlutverkinu svo og breytingar í áherslum skólans. Ungir foreldrar í dag sinna börnum sínum margfalt betur en hinir eldri gerðu, afleiðing betra uppeldis er að börn eru meðvitaðri um sjálfan sig og umhverfi sitt, þau velta meira fyrir sér samskiptum og líðan og eiga í foreldrum sínum bæði aðdáendur og stuðningsmenn sem styður börnin á hvern þann hátt sem þau trúa að sé barninu fyrir bestu. Auðvitað á þetta ekki við um alla foreldra en í stórum dráttum upplifi ég breytingar á þennan hátt. Að sama skapi er skólakerfið breyst mjög mikið, kennarar og starfsmenn skóla er mun meðvitaðra um líðan barna, greinir betur einelti og andfélagslega hegðun er meðvitaðri um áhrif ólíkra hluta á börn og reyna að skapa þeim rými til að láta sérstaka hæfileika sína þroskast. Nútíma skólakerfi reynir að bregðast við kröfum samfélagsins, kröfum foreldra, kröfum skólayfirvalda og kröfum barnanna sjálfra, stundum tekst það vel og stundum illa.

Þó bæði foreldrar og kennarar séu meðvitaðir um mikilvægi góðrar heilsu og nærandi samskipta skortir þeim tæki og aðstöðu til að breyta aðstæðum fyrir börnin. Hugmyndir sem byggt er á til að vinna með andfélagslega hegðun, geðheilsu og slæma líðan er afsprengi fyrri tíma þar sem áherslan er lögð á forræðishyggju, hegðun einstaklinga og samfélagsleg gildi í stað þess að horfa á börn í stærra samhengi síbreytilegs samfélags og hlusta á raddir þeirra.

Í Þorgrími Þráinssyni birtist maður sem virkilega tekur alvarlega þá staðreynd að börnunum okkar líður ekki nógu vel, margir deila áhyggjum hans og telja líkt og Þorgrímur að löngu sé kominn tími til að hefja þjóðarátak gegn vanlíðan barna. Í því átaki getum við þó ekki reitt okkur á einfaldar lausnir eða leitað af sökudólgum heldur þurfum við að sjá að líf barna og samskipti eru jafn flókin og líf og samskipti fullorðinna. Við þurfum fleiri sjónarmið. fleiri skoðanir, fleiri rannsóknir og fleiri sjónarhorn sem síðan geta leitt til þess að við finnum góða lausn.  Í þeirri vegferð þurfum marga og ólíka Þorgríma sem brenna fyrir málstaðnum og hafa kjark til að viðra skoðanir sínar, þrátt fyrir að einhver geti verið þeim ósammála.